Harpa Melsteð

Melurinn bullar

15.04.2008 17:56:17 / Harpa

Allt dautt hérna

Ég er nú ekki alveg búin að gleyma þessari síðu en verð að viðurkenna að Facebook æðið náði tökum á mér og hefur þessi síða því setið á hakanum:s.

Það sem hefur gengið á í mínu lífi að undanförnu er:

-Allt crazy í vinnunni
-Handboltinn á fullu, mætti ganga betur
-Skorradalur um páskana í góðra vina hópi
-Sálartónleikar
-Thelma með hlaupabólu
-Tvær gæsanir (Addý og Erla)
 
og margt margt fleira sem ég hreinlega man ekki.

Mig langar að benda á Moggabloggið mitt þar sem ég tjái mig einstaka sinnum um ákveðin málefni:
www.harpamel.blog.is
Þar var ég núna að tjá mig um úrslitakeppnina í handbolta.  Þið sem hafið áhuga á því endilega tjáið ykkur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 10:27:44 / Harpa

Ammmmælisbaddddn

Í tilefni dagsins 21.janúar sem er minn ammmmælisdagur hef ég ákveðið að gera færslu, jibbidídú;).  Í dag er ég sem sagt dirty something og ekki orð um það meir.  Ég ætla að nota tækifærið og óska tvíbbalingnum mínum henni Kristbjörgu innilega til hamingju með daginn í dag:).

Ég ætla ekki að hafa þetta langt og mér dettur ekki í hug að tala um EM, ég nenni ekki að eyðileggja góða afmælisskapið mitt hehehe.........

Ég læt fylgja hér mynd af mér og minni heittelskuðu dóttur ásamt einni af snúllunum hennar Dítu:).

Megið þið eiga góðan dag:haha:.


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 20:17:26 / Harpa

Jólahjól

Hinn hrikalega lati bloggari hefur ákveðið að kveða sér til róms8).

Jólin eftir aðeins 4 daga og það er óneitanlega kominn smá fiðringur í mallann:).  Ég er nú langt komin með allan undirbúning.  Ég bakaði fyrir löngu, sendi kortin í vikunni og kláraði að pakka flestu inn í gær.  Lokaþrifin verða svo tekin um helgina.  Ég þarf ekki mikið að kaupa inn þar sem við verðum í stanslausum boðum þessi jólin.  Síðasta æfingin fyrir jól er á morgun, síðan er frí fram á annan í jólum.  Enn betra er að eftir morgundaginn er ég komin í frí frá vinnunni og það besta er að það verður lokað á milli jóla og nýárs:).  Ég elska þennan tíma og ætla að reyna að njóta hans í botn:haha:.

Ég vil nota tækifærið og óska öllum vinum, ættingjum og blogglesendum

Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 12:59:19 / Harpa

Nokkuð til í þessu (bannað börnum)

TOPP TÍU listinn yfir það sem karlar myndu gera ef þeir væru með píku í einn dag:


10. Byrgja sig upp af agúrkum og banönum.

9. Sitja á hækjum sér yfir spegli í a.m.k. klukkustund.

8. Athuga hvort þeir geti núna loksins farið í splitt

7. Athuga hvort í raun og veru sé hægt að skjóta borðtenniskúlu metra vegalengd með henni.

6. Krossleggja lappir án þess að hagræða kynfærunum fyrst.

5. Lenda á séns á vínveitingastað fyrir hádegi.

4. Fá raðfullnægingu og heimta aðra fyrir svefninn.

3. Fara í rannsókn til kvensjúkdómalæknis og láta taka hana upp á myndband.

2. Biðja til Guðs um að fá brjóst líka.

1. Loksins finna G-blettinn.


TOPP TÍU listinn yfir það sem konur myndu gera ef þær væru með typpi í einn dag:

10. Fá stöðuhækkun.

9. Fá blowjob.

8. Skilja hvað er svona áríðandi við að fá úr honum.

7. Pissa standandi og halda uppi samræðum við aðra karlmenn á meðan.

6. Uppgötva af hverju bunan lendir stundum fram hjá.

5. Fara að sofa strax eftir kynlíf í stað þess að ræða sambandið.

4. Klóra sér í kynfærunum á almannafæri

án þess að hafa áhyggjur af því hvort einhver taki eftir því.

3. Hoppa upp og niður með standpínu til að komast að því hvort það sé eins kjánalegt að upplifa það og að sjá það.

2. Gera sér grein fyrir vísindalegri skýringu þess að ljósbrot í reglustiku gerir það að verkum að karlmanni sýnist hún mæla getnaðarlim a.m.k. þremur sentímetrum lengri en hann í raun og veru er.

1. Loksins fatta hvernig það er að vera með heilann í klofinu

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 22:11:48 / Harpa

Ég er á lífi já

Hrikaleg bloggleti svífur yfir vötnum þessa dagana:$.    Nú verð ég að fara að gera eitthvað í þessu.  Það sem er helst að frétta er að ég skrapp með múttu og Ástu frænku til Boston á dögunum:).  Ég komst að því að það er sko hörkupúl að fara í svona verslunarferð en líka rosalega gaman.  Við stöllur þræddum mollin og straujuðum kortin eins og okkur væri borgað fyrir það ("shop till you drop" átti vel við þarna, hehehe...).  Ég keypti nánast allar jólagjafirnar, jólakortin og dressaði upp familíuna:).  Mamman tapaði sér náttúrulega í Gap og keypti ansi margt fallegt á snúlluskottið sitt:haha:.  Boston er mjög skemmtileg borg en ég þarf að skella mér þangað aftur við tækifæri og skoða hana betur.  Það fór mestur tími í shoppingið að þessu sinni;).

Boltinn hefur ekki gengið alveg nógu vel hjá okkur það sem af er vetri:( en það er allt í vinnslu;).  Á fimmtudaginn er stórleikur í bikarnum á móti Stjörnunni sem er á toppi deildarinnar eins og er.  Allur stuðningur væri vel þeginn á fimmtudaginn, oft er þörf en nú er nauðsyn:klikk:.  Síðan er mikilvægur leikur í deildinni á sunnudaginn gegn Fram.  Eftir þann leik er hlé á deildinni þar til 11.desember8|

Mig langar að benda þeim sem ekki vita á snilldarsíðu sem fjallar um handbolta:).  Það er www.handbolti.is og það er enginn annar en Hlynur Eyjapeyi sem heldur utan um hana og stendur sig frábærlega.  Loksins er komin vel uppfærð og fersk síða sem fjallar um handbolta:), ánægð með þig Hlynur;).

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 16:40:17 / Harpa

Snillingatal

*  Við Haukadruslur erum snillingar:).  Við fengum okkar fyrstu stig á dögunum:$ og erum náttúrulega bara langflottastar.  Ég tala nú ekki um þegar við verðum komnar í nýju fínu sloppana okkar;).  Jú, þið lásuð rétt, við erum að fá sloppa til að vera í á Ásvöllum og mér skilst að það eigi að vera rosa myndataka í kjölfarið, hehehehe...........

*  Dóttir mín er snillingur:haha:.  Hún tók upp á því að grýta duddunum sínum í ruslið og var þar með hætt með duddu og ekkert múður með það (NB! hún var algjör duddustelpa).  Hún er náttúrulega bara flottust:).

*  Stefanovich, Eyfi, Björn Jörundur og Birgitta ásamt hljómsveit eru snillingar:).  Þetta stórskotalið lék fyrir dansi á frábæru balli á Ásvöllum um helgina:).  Ótrúlega gaman að fá svona góða blöndu á einu balli (þó að sjálfsögðu einn hafi klárlega staðið upp úr;)).  Ég skora hér með á þau að endurtaka leikinn, ég mæti;).

* Ég þakka skemmtileg komment við síðustu færslu.  Það eru náttúrulega bara snillingar sem þora að kommenta;), endilega "keep up the good work".


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 20:54:22 / Harpa

Long time no....

Ég er orðin alltof slöpp í blogginu, þetta er ekki hægt8|.  Það er reyndar búið að vera crazy mikið að gera svo ég kenni nú einhverju um;).  Ég hef aldrei á minni ævi lent í öðrum eins veislufaraldri.  Á síðastliðnum 5 vikum er ég búin að fara í 3 brúðkaup og 2 fimmtugsafmæli, geri aðrir betur.  Þetta voru allt skemmtilegar og flottar veislur en þetta var bara aðeins of mikið af því góða, fyndið hvernig þetta hittir stundum á.

Boltinn er farinn að rúlla á fullu en við erum reyndar bara búnar að spila einn leik og ég ætla sem minnst að ræða hann hér:evil:.  Næsti leikur er á laugardaginn við Akureyri fyrir norðan. Spurning hvort það sé ekki kominn tími til að byrja að safna stigum;).  Þegar við komum heim bíður okkar svakalegt ball á Ásvöllum þar sem Stefanovich leikur fyrir dansi ásamt fríðu föruneyti:haha:.

Ég gerðist fótboltabulla í einn dag um síðustu helgi:).  Ég hef aldrei horft á eins mikið af fótbolta á einum degi.  Það byrjaði á því að Sýn var órugluð og horfði ég því á Barcelona-Sevilla og endursýningu á meistaradeildinni.  Síðan var ferðinni heitið á Players að horfa á mína menn vinna Chelsea:D.  Að lokum fór ég í Krikann sem Hafnfirðingur og sá FH-Valur, þar fór ekkert á milli mála hvort liðið var hungraðra í titil.

Tölvan mín dó í morgun:(, blessuð sé minning hennar.  Ég var sem betur fer nýbúin að kaupa mér utanáliggjandi harðan disk þ.a. ég á back-up af flestu en ekki alveg öllu samt:(.  Ég er komin með tölvusnilla í málið og hann ætlar að reyna að redda því sem mér láðist að taka back-up af:).  Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að ég VARÐ að kaupa mér nýja tölvu ASAP enda er tölvan mjög mikilvægt vinnutæki hjá mér.  Ég er því að skrifa þessi orð á glænýja bláa Dell fartölvu sem er bara flottust:haha:.

Afsakið langlokuna, þeir lesa sem nenna;) og þeir sem nenna að lesa mega endilega commenta svo ég sjái nú tilganginn með því að hripa niður þetta bull;).  Ég lofa að láta ekki líða svona langt á milli næst.


» 9 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 16:54:52 / Harpa

Ljóskubrandari

Ljóskan hringir í kærastan og segir: "Viltu vera svo vænn að koma hjálpa mér að púsla rosalega erfitt púsluspil, ég veit ekki alveg hvernig ég á að byrja ?"

Kærastinn spyr : Af hverju á myndin að vera?
Ljóskan: Miðað við myndina utan á kassanum þá á þetta að vera hani.

Kærastinn ákveður að fara að hjálpa henni með pússlið.

Þegar hann kemur hleypir hún honum inn og leiðir hann að borðinu þar sem hún hefur dreift úr öllum bitunum í pússlinu.

Hann skoðar bitana í smástund, lítur á kassann, snýr sér þá að henni og segir : "Í fyrsta lagi, alveg sama hvað við gerum, eigum við ekki eftir að geta sett bitana þannig saman að þeir muni á nokkurn hátt líkjast hana."

Hann tekur í hönd hennar og segir: "Í öðru lagi, vertu róleg, fáum okkur góðan tebolla og svo skulum við..." segir hann andvarpandi.......  "..setja allt kornflexið í kassann aftur."
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 10:36:12 / Harpa

Mömmur eru bestar


Mömmur ;)
 
4 ára = Mamma mín getur allt.
8 ára = Mamma mín veit heilmikið.
12 ára = Mamma mín skilur ekki neitt.
14 ára = Að sjálfsögðu veit mamma mín ekki neitt um þetta frekar en annað.
16 ára = Mamma mín er ótrúlega gamaldags.
18 ára = Mamma mín er orðin svo gömul að hún veit ekkert um hvað lífið snýst í raun og veru.
25 ára = Mamma gæti nú vitað hvað ég ætti að gera.......
35 ára = Við skulum tala við mömmu áður en við ákveðum hvað við gerum.
45 ára = Hvað ætli mömmu finnist um þetta?
65 ára = Ég vildi óska að ég gæti rætt um þetta við mömmu............ 

Þær eru sko ómissandi þessar elskur:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 15:07:02 / Harpa

Allt komið á fullt

Nú er allt að fara á fullt í boltanum.  Það er langt síðan ég hef upplifað slíka törn eins og um þessa helgi8|.

Rvk-Open var um helgina og spiluðum við tvö leiki á föstudag við Fylki og Val og svo tvo á laugardag við Fram og Stjörnuna.  Við unnum Fylki og Fram en töpuðum fyrir Stjörnunni og Val í frekar slökum leikjum af okkar hálfu.  Við erum með fínt lið en eigum aðeins eftir að finna taktinn, það kemur vonandi fljótlega.

Í kvöld er hins vegar árlegur leikur um meistara meistaranna.  Við mætum Stjörnunni í Ásgarði klukkan 18.  Endilega allir að skella sér á völlinn og hvetja okkur áfram, við þurfum á öllum stuðningi að halda.

 Áfram Haukar


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.08.2007 21:50:29 / Harpa

Kellan að söðla um

Að undanförnu hef ég dottið í að lesa moggabloggin á mbl.is og er það bara ágætis afþreying. Ég ákvað því að stofna moggablogg bara svona til að vera með;). Ég ætla samt sem áður að halda áfram að blogga hér líka, kannski meira svona á persónulegu nótunum. Moggabloggið verður meira notað til að blogga um fréttir og þjóðmálin:).

Endilega tékkið á þessu:

http://harpamel.blog.is/blog/harpamel/#entry-294870


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 11:56:12 / Harpa

Spilandi aðstoðarþjálfari

Vegna fjölda fyrirspurna og undrunaraugna hef ég ákveðið að koma með opinbera tilkynningu hér. 

Ég sagði í vor að það væru meiri líkur á að ég myndi hætta í boltanum en ekki.  Með hækkandi sól ákvað ég síðan að halda áfram og þá í nýju hlutverki:).  Ég afhendi Hönnu Guðrúnu fyrirliðabandið með stolti enda sönn og traust Haukamanneskja þar á ferð:).  Mitt hlutverk þennan veturinn verður hins vegar að vera aðstoðarþjálfari Díönu Guðjónsdóttur jafnframt því að sprikla á vellinum.  Þetta er nýtt og spennandi hlutverk og er ég full tilhlökkunar enda ætlum við okkur stóra hluti í vetur.  Já, þið þurfið víst að þola mig enn einn veturinn;).  Liðið hefur annars ekki tekið miklum breytingum.  Við fengum einn nýliða, Eyjapæjuna síkátu Hind Hannesdóttur:).  Einnig hefur mér til mikillar ánægju Inga Fríða góðvinkona mín ákveðið að taka fram Stabil skóna að nýju :haha:.  Meðalaldurinn í liðinu hefur því aðeins hækkað með tilkomu Ingu Fríðu og áframhaldandi veru minni en það er nú besta mál enda hoknar af reynslu kellurnar;).

Það er mjög spennandi vetur framundan.  Rvk-open byrjar næsta miðvikudag, meistarar-meistaranna er sunnudaginn 2.september og fyrsti leikur í deildinni er 13.september.

Sjáumst á vellinum:haha: 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 23:57:39 / Harpa

Bankahelgin mikla

Bankar landsins koma heldur betur við sögu þessa helgina. Í kvöld voru stórtónleikar í boði Kaupþings (eða Kaupthing svo allir útlensku millarnir skilji nú8)). Á morgun er svo Maraþonhlaup á vegum Glitnis og svo endar allt á stór-tónleikum á Miklatúni í boði Landsbankans8|. Hvað er í gangi hér??? Persónulega myndi ég frekar vilja lægri vexti, lægri þjónustugjöld o.s.frv.. Mér finnst þetta banka"havarí" svo innilega gengið út í öfgar að það hálfa væri nóg:^).

Aftur að tónleikunum í kvöld. Ég sat að sjálfsögðu stjörf yfir þessu. Í heildina var þetta hin besta skemmtun, ótrúleg stemming, geggjað veður og allt svaka flott:lol:. Palli er náttúrulega bara snillingur í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur:). Það var líka gaman að sjá Todmobile, nostalgía dauðans:). Andrea flott með nýja stellið og Eyþór orðinn eins og tágrannur unglingur (hann var nú flottur í denn með síða hárið á sellóinu). Garðar Thór sýndi að hann er söngvari í heimsklassa, ég hef trú á að hann eigi eftir að slá í gegn þarna úti í hinum stóra heimi:). Senuþjófur kvöldsins var klárlega Bubbinn. Hann kom svellkaldur með Kastró hatt og reif kjaft eins og honum einum er lagið8). Ég verð nú að viðurkenna að þegar hann tók Afgan og Rómeó og Júlíu komu nokkuð margar gæsabólur á kelluna. Þegar hann fór svo að gaula jeyjeyjeyjeyjey.... þá fékk ég líka bara Þjóðhátíðar-flashback, ég hef ansi oft tekið undir þetta með kallinum;). Ef eitthvað á að setja út á tónleikana þá fannst mér hrikaleg mistök að láta Stuðmenn enda annars góða tónleika. Ég tek það fram að ég elskaði Stuðmenn in old days t.d. á "Með allt á hreinu" tímabilinu en mikið lifandi skelfingar ósköp eldast þeir illa8|. Mér fannst þeir vægast sagt hrikalegir, sorry ef ég móðga einhvern en þetta er mín skoðun. Reyndar finnst mér þeir varla svipur af sjón eftir að Ragga hætti. Og eitt að lokum: HVAR VAR SÁLIN????

Nú verður gaman að sjá hvort að Landsbankinn eigi eitthvað svar við þessu annað kvöld. Ég hef hugsað mér að mæta á svæðið og dæma það með eigin augum og eyrum8).

Reyndar byrja ég á að taka þátt í hlaupa-æðinu með Glitni fyrst;). Fólk í kringum mig er að státa sig af því að ætla að hlaupa 10 km en ég ætla að hlaupa einn hahahahahaha..... Ég verð á hlaupum á handboltavelli á meðan fólk svitnar í miðborginni en hins vegar ætla ég að fylgja dóttur minni eftir í Latabæjar-maraþoninu síðar um daginn:haha:.

Svei mér þá ef maður verður ekki kominn með banka-óþol eftir þessa helgi:S.


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 23:04:08 / Harpa

Klikkar ekki

Þjóðhátíðin klikkar aldrei:haha:, það er bara ekki í boði;).

Ég vil hér með þakka Hlyni Sigmars kærlega fyrir að bjóða mér og ekki síður Vigdísi og Erlingi fyrir hýsinguna, matinn og yndislegheitin:haha:.

Einnig vil ég koma þakklæti til meðlima Smáragötu-gengisins en án ykkar hefði Þjóðhátíðin ekki verið eins skemmtileg;) (reunion verður haldið í Kópavogi fljótlega, nánast auglýst síðar).

Ekki má svo gleyma uppáhalds-druslunum mínum sem eru alltaf jafnmikið æði, þó að á þær hafi þó runnið mismikið æði8|(ein af þeim náðist hreinlega ekki á filmu á þessari stundu hahahaha.....).

Ég nenni ómögulega að blogga nákvæmlega um þessa snilldarhelgi. Þið sem mættuð ekki, sorry en þið misstuð af miklu;).

Ég ætlaði nú að láta einhverjar myndir flakka en við sjáum nú til hvernig það tekst:S. Það kom hins vegar smá fréttaskot af mér, Kidda og Sigga stormi að skemmta okkur konunglega í einu hvítu tjaldanna. Hægt er að sjá það hér:

http://vefmidlar.visir.is/?channelID=&programID=e2721386-b309-4e1e-97eb-b4f889644c89&mediaSourceID=d2dba875-ef83-430d-b0c7-ff1326c56dbe

(c.a. mínúta 2:43-vona að þetta virki, það þarf að copera allan langa linkinn, ef ekki þá er þetta á visir.is, 5.ágúst,  hádegisviðtalið við Elliða Vignisson bæjarstjóra Vey).


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 19:10:51 / Harpa

Harpa þrettánda

Þá er komið að þrettándu Þjóðhátíðinni minni:). Reyndar er ég búin að vera mjög óróleg að undanförnu þar sem veðurspáin fyrir föstudaginn er hrikaleg8|. Ég tók því til minna ráða og breytti flugmiðanum mínum eins og mjööööög margir virðast hafa gert. Ég fer sem sagt til Eyja frá Bakka klukkan sex á morgun:). Ég heyrði í Vigdísi minni og það var nú auðvitað minnsta málið að mæta fyrr á svæðið. Í staðinn fær maður að taka þátt í undirbúningnum, t.d. hvítutjaldaslagnum, brauðsmurningu o.fl., það er bara gaman:). Ég hlakka mikið til að venju og verð að segja að mér er slétt sama hvernig veðrið verður svo lengi sem ég kemst til og frá Eyjum;).

Hversu gaman er þetta????


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17